26.04.1988
Neðri deild: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6833 í B-deild Alþingistíðinda. (4762)
423. mál, hlutafé Íslands í Alþjóðabankanum
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég mun styðja hækkun hlutafjár Íslands í Alþjóðabankanum. Ég vil hins vegar vegna þeirrar umræðu sem hér fór fram áðan minnast á eitt atriði sem ég tel að hv, þm. séu ákaflega illa upplýstir um og lítið gert til að upplýsa þá, varðandi þau verkefni sem Alþjóðabankinn hefur stutt víða um heim.
Innan Norðurlandaráðs hafa norrænir þm. lagt á það mikla áherslu að við þau verkefni sem Alþjóðabankinn leggur fé til sé þess vandlega gætt að þau verði ekki meira til skaða en gagns. Oftlega hefur gætt lítillar hirðu um umhverfismál, áhrif stórra verkefna meðal frumstæðra þjóða þar sem lítið tillit hefur verið tekið til umhverfisins, til Flóru og Fánu jarðarinnar. Þess eru því miður dæmi að þar hafi verið verr af stað farið en heima setið.
Ég vil því fara þess á leit við hæstv. ráðherra að hann sjái svo til að Alþingi fái upplýsingar um hver þau verkefni séu sem stjórn Alþjóðabankans samþykkir og það sé lögð á það megináhersla af Íslands hálfu að þar sé allra hluta gætt, menningar viðkomandi þjóða þó að hún kunni að vera frumstæð, umhverfismála og náttúru allrar.
Á næstsíðasta þingi Norðurlandaráðs bar ég fram fsp. um þessi mál, hvernig fylgt væri eftir samþykktum Norðurlandaþjóða um stefnu í umhverfismálum við þau verkefni sem Alþjóðabankinn legði fé til. Þar var því lofað að þess yrði gætt í vaxandi mæli. Meðan á þinginu stóð héldu fjármálaráðherrar Norðurlandaþjóða fund — og, ef ég man rétt, með stjórn Alþjóðabankans. Því miður verður það að segjast eins og er að þar komu þessi mál ekki einu sinni til umræðu. Ég vil þess vegna biðja hæstv. ráðherra að sjá svo til að hið háa Alþingi fái upplýsingar um þessi mál í meira mæli en áður. Ég er næstum viss um að hv. þm. hafa ekki minnstu hugmynd um hvað Alþjóðabankinn er að gera. Þau mál eru í höndum örfárra ferðaglaðra embættismanna sem láta ekki svo lítið að gefa hv. þm. skýrslu um hvað þeir hafa verið að gera á fundum víða um heim.
Þetta tel ég afar mikilvægt vegna þess að ég tel að sú tíð sé liðin þegar hægt var að lifa hér í þröngum heimi upplýsingaleysisins. Ég held að hv. þm. verði að hafa tækifæri til að fylgjast með því sem er að gerast innan þeirra stofnana sem Íslendingar eiga aðild að á alþjóðavettvangi, gegnum framkvæmdarvaldið, ráðuneytin og hæstv. ráðherra.