27.04.1988
Efri deild: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6870 í B-deild Alþingistíðinda. (4793)

439. mál, söluskattur

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég þarf ekki að bæta neinu við það þarfa mál sem hér var flutt né orð hv. 1. flm., öðru en því að ég styð þetta mál heils hugar. Af þeim orðum sem hún mælti og af þeim tölum sem hún gaf hv. þm. ætti engum að blandast hugur um hve staða öryrkja almennt er erfið og þetta er sjálfsagt réttlætismál. Þess vegna tek ég heils hugar undir erindi þessa frv.