28.04.1988
Sameinað þing: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6898 í B-deild Alþingistíðinda. (4843)
Varamenn taka þingsæti
Frsm, kjörbréfanefndar (Ólafur G. Einarsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Valdimars Indriðasonar, 1. varamanns Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, en óskað er eftir að hann taki sæti á þingi í fjarveru hv. þm. Friðjóns Þórðarsonar sem er á förum til útlanda í opinberum erindagjörðum. Kjörbréfanefnd leggur einróma til að kjörbréfið verði samþykkt.