28.04.1988
Sameinað þing: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6898 í B-deild Alþingistíðinda. (4846)
406. mál, kaupskipaeign Íslendinga
Fyrirspyrjandi (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
Herra forseti. Á þskj. 752 hef ég ásamt Guðrúnu J. Halldórsdóttur, varaþingkonu Kvennalistans, lagt fram fsp. til hæstv. samgrh. um kaupskipaeign Íslendinga og leigu erlendra farskipa.
Sjómenn hafa sem von er haft miklar áhyggjur af þróun þessara mála sl. ár þar sem stöðugt virðist færast í vöxt að erlendum skipum, jafnvel með erlendum áhöfnum, sé falið að annast vöruflutninga fyrir okkur. Það er alvarlegt að kippa þannig stoðunum undan íslenskri farmannastétt, en fáar þjóðir eru jafnháðar siglingum og við Íslendingar. Það er líka illt til þess að vita að hinir erlendu farmenn séu ráðnir á lakari kjörum en kjarasamningar hér á landi gera ráð fyrir og jafnvel verri en Alþjóðasamband flutningamanna segir til um.
Miðstjórn ASÍ ályktaði um málið 21. jan. sl., en í ályktun þess segir m.a., með leyfi forseta: Miðstjórn ASÍ mótmælir harðlega gegndarlausum leigutökum erlendra kaupskipa sem mönnuð eru erlendum sjómönnum. Jafnframt er varað við þeirri þróun að í vaxandi mæli eru skip undir svokölluðum þægindafánum í rekstri íslenskra kaupskipaútgerða mönnuð Íslendingum sem lögskráðir eru erlendis. Ljóst er að þess vegna greiða útgerðarmenn slíkra skipa ekki það sama í sameiginlega sjóði og aðrir íslenskir atvinnurekendur.“
Fsp. okkar til hæstv. samgrh. hljóðar svo, með leyfi forseta:
„1. Hvernig hefur þróunin verið í kaupskipaeign og farskiparekstri Íslendinga undanfarin tíu ár?
2. Hve mörg leigufarskip eru í þjónustu útgerðarfyrirtækjanna
a. mönnuð Íslendingum,
b. mönnuð erlendum sjómönnum?
Hve mörg þeirra eru í áætlunarsiglingum, strandsiglingum og tímabundnum siglingum?
3. Hver var kostnaður við leigu viðkomandi skipa undanfarin tvö ár:
a. í þurrleigu, þ.e. mönnuð Íslendingum,
b. í tímaleigu, þ.e. mönnuð útlendingum?
4. Hefur íslenskum farmönnum fækkað eða fjölgað undanfarin tíu ár?
5. Hafa ráðstafanir verið gerðar til að koma í veg fyrir að íslenskir farmenn verði fyrir atvinnumissi vegna mikillar leiguskipatöku?"