28.04.1988
Sameinað þing: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6927 í B-deild Alþingistíðinda. (4884)
483. mál, hlutafélagaskrá
Fyrirspyrjandi (Guðmundur Ágústsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir þessi svör og það að hann skuli ætla að endurskoða starfsemi hlutafélagaskrárinnar. Ég gat ekki skilið það á annan hátt sem fram kom í hans máli.
Það er annað sem fram kom í hans máli sem ég var ekki nógu hress með, að það skuli ekki vera gert ráð fyrir að fjölga skyldi starfsmönnum. Ég held að það sé alveg ljóst að ef hlutafélagaskrá á að halda í stóran hluta af þeim verkefnum sem henni eru skipuð með lögum þurfi að hafa starfsfólk sem getur sinnt þessum störfum. Ég veit að þeir starfsmenn sem þar vinna í dag reyna að gera sitt besta, en það er ekki nægjanlegt.
Kveikjan að þessari fsp. er m.a. sú að ég sá í Lögbirtingablaði ekki alls fyrir löngu að sömu fimm mennirnir stofnuðu tíu hlutafélög og öll hlutafélögin með 20 þús. kr. í hlutafé og eiginlega til sama rekstursins. Þá vakna margar spurningar og aðallega sú: Af hverju er verið að stofna svona mörg hlutafélög? Og í öðru lagi: Hvernig ætlar hlutafélagaskrá að fylgjast með þeirri starfsemi sem þessi hlutafélög koma til með að starfrækja?
Það er eitt að setja lög, eins og núna liggur fyrir að gert verði um breytingar á hlutafélögum, og setja hlutafélagaskrá ákveðin verkefni og annað er að fara eftir lögunum. Ég get ekki séð tilganginn með að setja svona fullkomin lög sem gera ráð fyrir miklu eftirlitshlutverki ef á svo ekkert að fara eftir þeim.
En að lokum ítreka ég þakkir mínar til viðskrh. og vona að þetta eigi eftir að lagast frá því sem nú er.