28.04.1988
Sameinað þing: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6936 í B-deild Alþingistíðinda. (4900)
497. mál, lausar stöður kennara og skólastjóra og ráðning í þær
Fyrirspyrjandi (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
Herra forseti. Yfirstandandi skólaár er senn liðið, en vegna kjaradeilna kennara við ríkið er uppi mikil óvissa meðal kennara um framtíðarkjör sín. Það er því eins víst að einhverjir muni róa á önnur mið nú ef ekki fer að hilla undir viðunandi lausn á kjaradeilum undanfarinna ára.
Vegna þess hve kennarar eru lágt launaðir miðað við menntunarkröfur og þá auknu ábyrgð sem fylgir starfinu auk lélegra vinnuaðstæðna oft og tíðum hefur sífellt reynst erfiðara að fá kennara með tilskilin kennsluréttindi til starfa við skóla landsins. Þróun kennslumála er orðin í mikilli hættu þegar reyndin er sú að stöðugt fleiri kennaramenntaðir leita annarra starfa, en í störf kennara ganga ófaglærðir réttindalausir einstaklingar. Þeir einstaklingar sem þannig fylla kennarastöður um lengri eða skemmri tíma vinna oft þarft verk og forða vandræðaástandi sem skapast hefði vegna kennaraskorts. Þetta á við einkum úti á landsbyggðinni.
En þó að sumir hafi reynst vel þrátt fyrir lítinn sem engan starfsundirbúning er hitt jafnvíst að slíkar bráðabirgðalausnir með tíðum kennaraskiptum eru óviðunandi og beinlínis skaðlegar námi barna. Þarf þá ekki að taka fram hve óviðunandi misrétti ríkir milli dreifbýlis og þéttbýlis í þessum efnum.
Í svari við fsp. minni til hæstv. menntmrh. um hlutfall ráðinna kennara og leiðbeinenda við skóla landsins á þessu skólaári kom í ljós að hlutfall leiðbeinenda er enn þá allt of hátt og í sumum fræðsluumdæmum allt upp í rúmlega 40% sem er með öllu óviðunandi og vekur enn og aftur upp spurninguna um jafnrétti barnanna til náms.
Vegna þess að nú er skólaári að ljúka, eins og ég gat um í upphafi máls míns, hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. á þskj. 866. Þar spyr ég, með leyfi forseta:
„Hversu margar stöður a) kennara, b) skólastjóra munu fyrirsjáanlega losna annars vegar við grunnskóla, hins vegar við framhaldsskóla nú í vor? Hverjar eru horfur með ráðningu í þær í haust?"