29.04.1988
Neðri deild: 83. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7053 í B-deild Alþingistíðinda. (5033)

116. mál, læknalög

Geir H. Haarde:

Herra forseti. Í fjarveru formanns og varaformanns hv. heilbr.- og trn. vildi ég taka fram að nefndinni hefur yfirsést í 32. gr. að því er varðar gildistöku laganna sem þarna er gert ráð fyrir að verði 1. jan. 1988. Ég vildi bara tilkynna að það mun verða flutt brtt. við 3. umr. um að breyta þessari dagsetningu til samræmis við þær dagsetningar sem uppi eru um þessar mundir.