29.04.1988
Neðri deild: 84. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7083 í B-deild Alþingistíðinda. (5077)

473. mál, framlag Jöfnunarsjóðs til sveitarfélaga

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég þakka frummælanda, hv. 4. þm. Norðurl. v., fyrir ágæta framsögu og ábendingar sem fylgdu um stöðu mála hvað snertir Jöfnunarsjóðinn. Ég er alveg viss um að þeir 61 auðu stólar sem hér hafa hlustað á málflutning hans standa með honum sem einn maður.