30.04.1988
Sameinað þing: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7148 í B-deild Alþingistíðinda. (5163)

429. mál, vinnuvernd í verslunum

Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):

Herra forseti. Ég þakka kvennalistakonum fyrir veittan stuðning við þessa þáltill. og einnig ræðu hv. þm. Danfríðar Skarphéðinsdóttur, sem mér fannst góð miðað við þann málstað sem við erum að berjast fyrir, en það vekur athygli mína að það er sá eini stuðningur sem þessi tillaga fær á hv. þingi. Það hefur ekki einn einasti þingmaður úr öðrum flokkum staðið upp til þess að leggja þessu fólki lið. Tel ég okkur flm. fullsæmda af því sem og Sjálfstfl. að fá stuðning frá kvennalistakonum í þeirri baráttu sem hér er um að ræða.