02.05.1988
Efri deild: 85. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7182 í B-deild Alþingistíðinda. (5218)

130. mál, meðferð einkamála í héraði

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég kem hér í ræðustól eingöngu til að lýsa því yfir að ég tel þær brtt. sem hv. allshn. hefur hér flutt, allar vera til bóta og að ég fyrir mitt leyti lýsi yfir stuðningi við þær.