04.05.1988
Efri deild: 87. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7303 í B-deild Alþingistíðinda. (5334)

228. mál, framleiðsla og sala á búvörum

Skúli Alexandersson:

Þrátt fyrir það að ekki hafi komið í ljós fyrr en nú í atkvæðagreiðslunni að mál þetta er ekki unnið á þann veg sem við töldum víst í landbn., að málið væri unnið í ríkisstjórn og það væri eftir samþykkt ríkisstjórnar allrar, tel ég þetta sjálfsagt réttlætismál. Ég vænti þess að ríkisstjórnin muni leiða þetta á þann veg sem flm. ætlast til og segi já.