04.05.1988
Neðri deild: 89. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7380 í B-deild Alþingistíðinda. (5377)
474. mál, meðferð opinberra mála
Frsm. allshn. (Ólafur G. Einarsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um breytingu á lögum um meðferð opinberra mála. Þetta frv. fjallar um breytingu á sektarfjárhæðum, og eins það, að ef það verður að lögum má gera ráð fyrir að ljúka megi um 300 málum með dómsátt sem skv. núgildandi lögum yrðu að ganga til dóms. Þannig felur þetta í sér mikið hagræði.
Allshn. mælir einróma með að frv. verði samþykkt eins og það er komið frá hv. Ed.