04.05.1988
Neðri deild: 89. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7384 í B-deild Alþingistíðinda. (5389)

391. mál, Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. menntmn. í fjarveru frsm., hv. 10. þm. Reykv., um frv. til laga um Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála.

Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur einróma til að það verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá hv. Ed.