04.05.1988
Neðri deild: 89. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7385 í B-deild Alþingistíðinda. (5394)
75. mál, jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla
Frsm. félmn. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá félmn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 65/1985, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Hér er um að ræða 75. mál Nd., frv. sem flutt var af hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni, 2. þm. Austurl. og hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur, 13. þm. Reykv. Þetta frv. gerði ráð fyrir því að lögsett yrði að hafa sem jafnasta tölu fulltrúa beggja kynja í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum ríkis, sveitarfélaga og félagasamtaka. Er gert ráð fyrir því, eins og stendur í 1. gr. frv., að ekki skuli vera færri en 40% af hvoru kyni og gildir það bæði um aðalmenn og varamenn.
Félmn. sendi þetta frv. til umsagnar, m.a. til allra ráðuneytanna, Samtaka kvenna á vinnumarkaði, Jafnréttisráðs, Kvenréttindafélags Íslands, Kvenfélagasambands Íslands og Sambands ísl. sveitarfélaga. Umsagnir hafa borist frá flestum þessum aðilum, þó ekki öllum. Þeir sem hafa sent umsögn eru samþykkir því markmiði sem ætlunin er að ná með frv., að auka hlutdeild kvenna í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum ríkis, sveitarfélaga og félaga, en efast hins vegar um að það verði gert með því að lögbinda ákveðið kynjahlutfall á þann hátt sem frv. gerir ráð fyrir.
Í þessu sambandi vil ég aðeins bera niður í umsögn frá félmrn. sem barst nefndinni. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Þetta markmið er einnig að finna í jafnréttislögum og framkvæmdaáætlun um Jafnréttisráð. Hins vegar telur ráðuneytið heppilegra að reyna aðrar leiðir að þessu markmiði en að ákveða með lögum að ekki skuli vera færri en 40% af hvoru kyni í nefndum, stjórnum og ráðum sem skipuð eru beint af ráðuneytinu eða á vegum opinberra stofnana og fyrirtækja.“
Bent er í þessu sambandi á 3. gr. jafnréttislaga, en í henni er heimild til tímabundinna aðgerða til hagsbóta konum. „Þessa heimild mætti hugsanlega nýta til að ná þeim markmiðum sem hér er lýst. Félmrh. hefur óskað eftir því við Jafnréttisráð að það geri tillögur um það hvernig 3. gr. jafnréttislaga verði nýtt og er þetta mál nú til skoðunar hjá Jafnréttisráði.“
Enn fremur hefur komið fram í máli hæstv. félmrh. að það er verið að vinna á hennar vegum og ráðuneytisins af fullum krafti að þessu máli.
Með hliðsjón af þessu kemur fram í nál. að nefndarmenn eru sammála því grundvallarsjónarmiði sem býr að baki þessa frv., að eðlilegt sé að konur séu valdar til starfa í stjórnum og ráðum til jafns við karla. Þetta markmið er í núgildandi jafnréttislögum og framkvæmdaáætlun um jafnréttismál. Það hefur komið fram að unnið er að þessu máli á vegum ríkisstjórnar og Jafnréttisráðs. Telur nefndin því rétta málsmeðferð að þessu frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Steingrímur J. Sigfússon sat fund nefndarinnar og er samþykkur þessu áliti. Undir þetta skrifa auk formanns Birgir Dýrfjörð, Geir H. Haarde, Eggert Haukdal, Jón Kristjánsson, Kristín Einarsdóttir og Óli Þ. Guðbjartsson.