05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7422 í B-deild Alþingistíðinda. (5456)

319. mál, staðgreiðsla skatta af orlofsfé

Fyrirspyrjandi (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti. Ég þakka fjmrh. svörin. Mér virðist að það komi skýrt fram í hans svari að staðgreiðsla er mismunandi af orlofi eftir því hvernig launþegi fær greitt. Ég vil jafnframt þakka honum fyrir að taka þegar til höndum í þessu máli og reyna að samræma staðgreiðslur af orlofi. Ég hjó eftir því í hans máli að viðræður eru hafnar við félmrn. um að samræma þessar greiðslur og þá er vel, þá er markinu náð.