05.05.1988
Sameinað þing: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7428 í B-deild Alþingistíðinda. (5466)

487. mál, kostnaður vegna auglýsinga

Níels Árni Lund:

Herra forseti. Ég þakka þær upplýsingar sem komu fram hjá hæstv. fjmrh. Það efast enginn um gildi auglýsinganna hvort sem þær eru góðar eða vondar og í þessu tilfelli held ég að hér sé um ótvírætt góðar auglýsingar að ræða sem sjálfsagt er að taka undir. Hér er þarft mál sem er vert að kynna þjóðinni og vekja til umhugsunar um og tel ég að síst beri að lasta þann máta sem verið hefur framkvæmdur á því að koma því til skila.

Þá vil ég fagna sérstaklega að mun meira jafnræðis gætir nú milli dagblaða um að fá að birta þessar auglýsingar sem ber vott um að fjmrh. áttar sig á því að menn kaupa fleiri en eitt eða tvö dagblöð í landinu.