05.05.1988
Efri deild: 90. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7494 í B-deild Alþingistíðinda. (5554)

360. mál, umferðarlög

Júlíus Sólnes:

Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. 4. þm. Vesturl. um það að það er smátt og smátt verið að keyra okkur inn í þetta kerfismannhaf Vestur-Evrópulandanna. Við megum ekki standa upp úr með neitt sem er öðruvísi en gerist hjá þessum milljónaþjóðfélögum í Vestur-Evrópu. Ég vil eindregið leggja til að við höldum þessum séreinkennum okkar og þess vegna segi ég: nei.