05.05.1988
Efri deild: 90. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7496 í B-deild Alþingistíðinda. (5558)

444. mál, Atvinnuleysistryggingasjóður

Frsm. heilbr.- og trn. (Karl Steinar Guðnason):

Virðulegi forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um frv. um Atvinnuleysistryggingasjóð vegna fiskvinnslufólks. Nefndin leggur eindregið til að málið verði samþykkt óbreytt eins og það liggur fyrir.