06.05.1988
Efri deild: 93. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7650 í B-deild Alþingistíðinda. (5664)

439. mál, söluskattur

Frsm. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um þetta frv. sem gengur út á það að heimila fjmrh. að fella niður söluskatt af tryggingaiðgjöldum bifreiða öryrkja. Nefndin varð sammála um að mæla með frv. efnislega og flytur þar að lútandi brtt. á sjálfstæðu þingskjali.

nál. standa allir nefndarmenn í hv. fjh.- og viðskn. svo og hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir sem sat fundi nefndarinnar.