06.05.1988
Neðri deild: 93. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7660 í B-deild Alþingistíðinda. (5678)
477. mál, þinglýsingalög
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um þinglýsingar sem hv. Ed. hefur samþykkt.
Frv. er fylgifrv. með frv. til laga um breytingar á umferðarlögum nr. 50/1987 vegna þess að skv. brtt. sem þar er flutt yrði hætt að skrá ökutæki eftir lögsagnarumdæmum. Þetta kallar á breytingu á þinglýsingalögum sem hér er gerð tillaga um. Frv. þarf að verða samferða frv. um breytingar á umferðarlögunum sem ég legg áherslu á að nái fram að ganga á þessu þingi.
Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allshn. þessarar deildar og 2. umr.