07.05.1988
Sameinað þing: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7723 í B-deild Alþingistíðinda. (5807)

467. mál, vegáætlun 1987--1990

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð mörg því að þingflokksformaður Borgarafl. hefur staðfest að um það var samið að þessi fundur stæði ekki lengur en til kl. 3 og það voru þau skilaboð sem hann bar Borgarafl. Aftur á móti vil ég spyrja hæstv. forseta að því hvort hann hafi haft samband við aðra þingflokksformenn síðan fundurinn var haldinn og komist að einhverju samkomulagi við þá um að þingfundinum lyki milli kl. 3 og 4. Það er ekki það sem um var samið skv. því sem komið hefur fram og staðfest er af þingflokksformanni Borgarafl.