07.05.1988
Sameinað þing: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7725 í B-deild Alþingistíðinda. (5812)

465. mál, flugmálaáætlun 1988--1991

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Með því að taka ekki þátt í atkvæðagreiðslu hér áðan hafa formaður Borgarafl. og formaður þingflokks Borgarafl. verið að greiða fyrir þingstörfum. En ég vek athygli á því að með afstöðu sinni hljóta þeir að vera að lýsa vantrausti á fulltrúa flokks síns í fjvn. sem skrifar undir þetta nál. og leggur til að brtt. verði samþykktar. Ég segi já.