09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7758 í B-deild Alþingistíðinda. (5848)
Efnahagsráðstafanir
Forsætisráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Það voru ekki mín orð að þær nýju hugmyndir sem Alþb. hefur kynnt um stefnu í efnahagsmálum séu flugeldasýning, en auðvitað má nota það orð um þessar tillögur eins og hv. þm. Ragnar Arnalds gerði. Ég gerði einungis það eitt að vekja athygli á því hversu skörp stefnubreyting hefur átt sér stað á vettvangi þessa flokks frá því að hann flutti vantraust á ríkisstjórnina fyrir fáum dögum.
Ég þarf ekki að ítreka hér það sem ég hef áður sagt í þessum umræðum og áður hér á hinu háa Alþingi að þessi ríkisstjórn mun að sjálfsögðu mæta þeim vanda sem við blasir í atvinnulífi landsmanna. Það er fylgst með því á vegum þeirra stofnana sem hafa með höndum upplýsingaöflun um gang efnahagsmála. Ýmislegt í þessum efnum er að gerast þessa daga. Það verðfall sem hefur leitt til minni kaupmáttar útflutningstekna á þessu ári er að gerast þessa daga og miklu skiptir að menn geri sér fulla grein fyrir því hvert er eðli þessa vanda og hversu umfangsmikill hann er. Það er ljóst að við getum ekki og munum ekki búa við það að útflutningsatvinnuvegirnir starfi með halla til langframa.
En spurningin um það hvað eru efnahagsráðstafanir. Hver ríkisstjórn, þessi ríkisstjórn sem aðrar, eru nánast á hverjum degi að taka ákvarðanir sem hafa efnahagslega þýðingu í meira eða minna mæli. Ég nefni hér dæmi um ákvarðanir sem hafa verulega mikla þýðingu fyrir framvindu efnahagsmála. Það eru fiskverðsákvarðanir. Þær fara jafnan fram í byrjun júnímánaðar. Þær hafa grundvallarþýðingu fyrir til að mynda afkomu fiskvinnslunnar í landinu. Ég veit ekki til þess að það hafi nokkurn tíma verið venja að binda störf Alþingis við þessar ákvarðanir. Það er alveg nýtt ef þau sjónarmið eru uppi. En þessar ákvarðanir hafa gífurlega mikla efnahagslega þýðingu, þannig að eftir stendur að ekkert það er komið fram í þessum efnum sem gefur ástæðu til þess að breyta ákvörðun um þinglausnir að þessu sinni.