09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7761 í B-deild Alþingistíðinda. (5857)

117. mál, flugfargjöld

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég vil þakka allshn. fyrir umfjöllun um þessa till. og er auðvitað ánægður með að hún er komin hér til þingsins með mjög jákvæðri umsögn frá nefndinni og þeim aðilum sem leitað var umsagnar hjá. Ég vænti þess að sú grg. sem till. gerir ráð fyrir að unnin verði varpi ljósi á það sem ljósi er beint að í tillgr. og hægt verði að meta málin og grípa til aðgerða eftir því sem réttmætt þykir í framhaldi af því.