09.05.1988
Sameinað þing: 81. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7763 í B-deild Alþingistíðinda. (5864)

165. mál, Vesturlandsvegur

Alexander Stefánsson:

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins koma upp til að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu á þessari till. Það er mikilvægt mál sem hér er verið að fjalla um en tekur mörg ár og það er mikilvægt að fá viljayfirlýsingu frá Alþingi til að vinna áfram að þessu máli. Fyrsta fjármagn á fjárlögum kom á sl. ári og er endurtekið nú þannig að það er visst fjármagn til til þess að hefja þessa vinnu, en þetta er margra ára verk.