09.05.1988
Efri deild: 95. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7776 í B-deild Alþingistíðinda. (5895)

301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Danfríður Skarphéðinsdóttir:

Herra forseti. Við kvennalistakonur styðjum þá hugmynd sem hér kemur fram að tekið sé tillit til þeirra þátta sem hérna eru tilteknir. Hins vegar höfum við gert það að tillögu okkar að þessu frv. verði vísað til ríkisstjórnarinnar og þess vegna greiði ég ekki atkvæði.