09.05.1988
Efri deild: 96. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7792 í B-deild Alþingistíðinda. (5920)

293. mál, áfengislög

Danfríður Skarphéðinsdóttir:

Herra forseti. Ég er ein af þeim sem eru ekki hlynntir einhliða banni við sölu á áfengu öli hér á landi, en ég tel að þau skref sem stigin eru hér með flutningi þessara tillagna séu afar skynsamleg og einföld í framkvæmd. Ég vil því þakka hv. flm. fyrir till. sem við höfum nú hér til umfjöllunar og lýsi stuðningi mínum við þær. Það er einfalt og auðvelt að afgreiða till. þær sem hér liggja fyrir og það tekur ekki langan tíma. Við ættum að geta gert það alveg á sama hátt og við afgreiðum hér mörg mál með miklum hraða þessar klukkustundirnar.