09.05.1988
Efri deild: 96. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7805 í B-deild Alþingistíðinda. (5930)

293. mál, áfengislög

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Mér er kunnugt um að samráð af því tagi sem þessi tillaga gerir ráð fyrir hefur átt sér stað. Því er þessi tillaga óþörf og því segi ég nei.