09.05.1988
Efri deild: 96. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7805 í B-deild Alþingistíðinda. (5931)

293. mál, áfengislög

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Mér er kunnugt um það að verulegur misbrestur hefur verið á samráði milli fjmrh. og heilbrrh. í sambandi við verðlagningu á áfengi. Þess vegna er þessi tillaga óhjákvæmileg nauðsyn og því segi ég já.