09.05.1988
Efri deild: 96. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7806 í B-deild Alþingistíðinda. (5935)

293. mál, áfengislög

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Ég tel þessa brtt. ekki nægilega skýra. Æskilegra hefði verið að till. hefði komið fyrr fram og einnig að hún hefði verið markvissari. Ég fyrir mitt leyti vil stuðla að öflugu forvarnarstarfi gegn öllum hættulegum vímuefnum, m.a. með stórauknum fjárframlögum í fjárlögum. Þessi brtt. fullnægir ekki því markmiði að mínu mati og því segi ég nei.