09.05.1988
Neðri deild: 97. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7809 í B-deild Alþingistíðinda. (5949)

436. mál, bifreiðagjald

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Á þskj. 1085 birtist álit meiri hl. fjh.- og viðskn. sem mælir með því að frv. verði samþykkt. Minni hl. mun skila séráliti.

Að þessu meirihlutaáliti standa Páll Pétursson, Geir H. Haarde, Guðmundur G. Þórarinsson, Einar Kr. Guðfinnsson og Kjartan Jóhannsson.