10.05.1988
Neðri deild: 100. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7857 í B-deild Alþingistíðinda. (5997)

360. mál, umferðarlög

Forseti (Jón Kristjánsson):

Hv. 4. þm. Austurl. endar þetta þing eins og hann byrjaði. Hér hefur verið farið að venju um þingsköp í vetur. Það hefur verið rannsakað og ég vísa ummælum hv. 4. þm. Austurl. á bug en læt mér orð hans að öðru leyti í léttu rúmi liggja vegna þess að þau dæma sig sjálf. Það er hægt að rannsaka það hvenær sem er með hverjum hætti þinghald hefur verið hér í vetur, en það hefur verið að venju og hvergi brugðið þar út af. Hér verður borin upp 2. gr. frv. eins og óskað er eftir þannig að þessi umræða er tilefnislaus með öllu og ástæðulaus.