10.05.1988
Neðri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7859 í B-deild Alþingistíðinda. (6006)

441. mál, ábúðarlög

Frsm. landbn. (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Landbn. Nd. hefur fjallað um frv. til laga um breytingu á ábúðarlögum, nr. 64 31. maí 1976, og tekur að fullu undir afgreiðslu hv. Ed.

Nefndin hefur athugað frv. og mælir með því að það verði samþykkt.

Undir þetta álit rita allir nefndarmenn.