10.05.1988
Neðri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7863 í B-deild Alþingistíðinda. (6019)

439. mál, söluskattur

Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. leggur til að þetta frv. verði samþykkt eins og Ed. gekk frá því. Þetta er þmfrv. og 1. flm. þess er hv, þm. Margrét Frímannsdóttir. Það fjallar um niðurfellingu söluskatts af ábyrgðartryggingum bifreiða öryrkja.

Um þetta mál er gott samkomulag og undir það rita allir nefndarmenn.