10.05.1988
Neðri deild: 101. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7910 í B-deild Alþingistíðinda. (6033)

431. mál, virðisaukaskattur

Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég vil bara benda hv. 4. þm. Reykn. á það að ef menn vilja styðja við bakið á menningu og listum þá er aðferðin til þess ekki sú að setja lög um hið gagnstæða.