10.05.1988
Efri deild: 99. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7943 í B-deild Alþingistíðinda. (6103)

468. mál, leigubifreiðar

Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Því frv., sem hér er aftur komið til umræðu í Ed., var breytt í Nd. Efnislega er breytingin sú að lögin taka gildi 1. okt. á þessu ári í staðinn fyrir að í frv. var gert ráð fyrir að þau öðluðust þegar gildi. Það kom fram hjá frsm. samgn. Nd. að hann vonaðist til þess að sá tími, sem með þessu ynnist, yrði nýttur til að leysa það ágreiningsmál sem þar var minnst á, en það mál var ekki til umræðu þegar frv. var til meðferðar í þessari hv. deild. Ég hef engar athugasemdir við breytinguna og mæli með því að frv. verði samþykkt óbreytt í þessari hv. deild.