11.05.1988
Sameinað þing: 84. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 7970 í B-deild Alþingistíðinda. (6174)
Kosning eins manns í bankaráð Seðlabanka Íslands
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Í fundarhléi fór formaður þingflokks Borgarafl. fram á það að þessu máli yrði frestað. Því var hafnað á þeim forsendum að það væru óskráð lög sem leyfðu það ekki. Ég veit ekki hvaða óskráð lög eru í gildi um þetta eða annað. Það væri fróðlegt að fá að vita meira um það.
Andi laganna segir að stjórnarandstaða eigi að hafa ákveðið hlutfall í öllum stjórnum, nefndum og ráðum á vegum ríkisins. Eins og ríkisstjórnin hefur stokkast upp hefur hún fjóra af fimm bankaráðsmönnum í Seðlabankanum. Ég tel það vera rangt og alls ekki í anda lýðræðis. Þess vegna óska ég eftir að sú kosning sem fór fram á síðasta kjörtímabili og er miðuð við þann styrkleika sem flokkarnir höfðu þá verði látin gilda og að varamaður þess sem hverfur nú úr bankaráði Seðlabankans verði að sjálfsögðu látinn ganga upp og taka við. Það var ætlast til þess þegar frá málinu var gengið. Sá varamaður heitir Benedikt Davíð Björnsson og ætti að koma inn í Seðlabankastjórnina fyrir Björn Björnsson en báðir eru alþýðuflokksmenn.
En ef þetta Alþingi, sem er öðruvísi saman sett en það síðasta, á að kjósa mann í bankaráð, þá er það ný ákvörðun og þá verður að gæta anda laganna, að hlutfallið raskist ekki á milli stjórnarliða og stjórnarandstæðinga. Því mótmæli ég núna að stjórnarliðar eftir þennan fund haldi áfram að hafa fjóra menn af fimm í bankaráði Seðlabanka Íslands og fer formlega fram á það hér sem formaður Borgarafl. að þessi kosning fari ekki fram heldur, til þess að halda frið, að varamaður Björns Björnssonar taki hans sæti í Seðlabankanum.