15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í B-deild Alþingistíðinda. (69)
24. mál, ráðstafanir í ferðamálum
Albert Guðmundsson:
Virðulegur forseti. - Ég ætla að endurtaka ávarpið. Hæstv. forseti. Mér hefur verið bent á að það sé samkvæmt góðum þingvenjum að ávarpa forseta hæstv. forseta, en ég hafði tamið mér annað áður.
Hæstv. forseti. Ég er afskaplega ánægður með eitt og áður en ég segi hvað það er vil ég minna þingheim á að Borgarafl. varð til í apríl á mjög stuttum tíma af brýnni þörf. Frá því hefur Borgarafl. ekki haft tækifæri til að láta rödd sína hljóma mikið. Það hefur verið eiginlega þögn um Borgarafl. í fjölmiðlum og við höfum haft gaman af því, teljum það styrkleika að þannig skyldi verða brugðist við honum.
Nú er fyrsti dagur umræðna á Alþingi og þá kemur hv. 3. þm. Vesturl. Eiður Guðnason, svo að það fari ekki á milli mála hver þm. er, og kvartar undan því að þegar Borgarafl. taki til máls tali hann stundum eins og ekkert hafi skeð áður en hann komst til áhrifa í þjóðfélaginu. Borgarafl. hefur ekki tekið til máls enn þá að frádregnu því sem ég hef talað hér í dag og Óli Þ. Guðbjartsson, hv. 6. þm. Suðurl., sagði áðan. (Menntmrh.: Og Aðalheiður í gær.) Aðalheiður í gær. Takk fyrir. Það er rétt. Aðalheiður í gær, enda kom það sem helst var sagt af viti í gær frá henni og síst skyldi ég gleyma því.
En rödd Borgarafl. á eftir að heyrast og ég held að það verði þjóðfélaginu til gagns og sóma því að ekki hafa alþm. talað þannig hingað til sjálfir að það sé vanþörf á því að auka sóma Alþingis. Og til þess nú að gera það og af því að hv. 3. þm. Vesturl. er í stjórnaraðstöðu en hefur verið að vitna í tillöguflutning sinn á Alþingi þegar hann var í stjórnarandstöðu vil ég skora á hv. þm. að flytja málið aftur nú, þegar hann hefur náið samstarf við og er einn nánasti samstarfsmaður fjmrh. á Alþingi, ég held ef ég fer ekki rangt með að hann sé formaður þingflokks fjmrh., þær sömu tillögur sem hann var að vitna í að hann hefði flutt um verklegar framkvæmdir í nágrenni Gullfoss og annarra þeirra perla íslensks landslags sem hann ku meta. (EG: Þm. hefur ekki tekið eftir. Till. var samþykkt.) Till. var samþykkt, en hún var ekki framkvæmd. Hún var ekki framkvæmd vegna þess að það vantaði fé og það er fé sem bæði fyrrv. samgrh. og ferðamálaráðsmenn hafa verið á höttunum eftir frá fjmrh. í langan tíma, m.a.s. meðan ég var þar og gat nú ekki tekið undir þeirra óskir. En ég skora á hv. flm. till. að sjá um að nú verði hafnar framkvæmdir.
Hann flutti margar aðrar ágætar tillögur í stjórnarandstöðu og margar af þeim eru þess eðlis að ég vil gjarnan að hann flytji þær aftur til að geta tekið undir þær því að nú er hann í aðstöðu til þess að hafa meiri áhrif en hann hafði þá.
En ég fagna því að Borgarafl. skuli vera svona ofarlega í hugum stjórnarliða eins og raun ber vitni í ummælum hv. 3. þm. Vesturl.