15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í B-deild Alþingistíðinda. (72)

24. mál, ráðstafanir í ferðamálum

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir svarið. En í mínum huga breytir það engu með hvaða hætti skerðingin er fengin fram. Það breytir engu fyrir málefnið nema til hins verra. En það er þó bót í máli að hv. þm. skuli þó viðurkenna að hann var annarrar skoðunar meðan hann var ráðherra en hann er nú.