24.11.1987
Neðri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í B-deild Alþingistíðinda. (812)
42. mál, áfengislög
Geir H. Haarde:
Herra forseti. Það er nú eitthvað annað en þetta mál hafi haft einhvern sérstakan forgang í þinginu. Ég sé í þeim gögnum sem mér hefur verið trúað fyrir sem skrifara þessarar hv. deildar að máli þessu var útbýtt í þinginu 21. okt. Það hefur verið á dagskrá 26. okt., 28. okt., 2. nóv., 5. nóv., 17. nóv., 18. nóv. og loks í dag. Ef þeir þm. sem mest hafa talað gegn þessu máli una því ekki einu sinni að málinu sé komið til nefndar með þinglegum hætti geta þeir engum frekar um það kennt en sér sjálfum. Ég fer fram á það, herra forseti, að reynt verði að ljúka þessari umræðu og það sem fyrst.