24.11.1987
Neðri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (821)

42. mál, áfengislög

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég ítreka að enginn þm. hefur rétt á að tala nema tvisvar. Það er undir forseta komið hvort forseti heimilar honum að taka til máls í þriðja skiptið. Þar sem mér virðist svo sem forseti ætli að standa á sínum fyrri úrskurði fer ég þess á leit við hann að hann beiti sér fyrir því að þetta mál verði fyrsta mál á dagskrá þessarar hv. deildar á næsta fundi hennar.