02.12.1987
Neðri deild: 16. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1398 í B-deild Alþingistíðinda. (984)
84. mál, viðskiptabankar
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Ráðning í stöður bankastjóra er mál sem varðar alla. Það er ekki aðeins að bankastjórar fjalli um lán og lánveitingar heldur geta störf þeirra haft víðtæk áhrif á atvinnu- og fjármálaþróun í landinu. Það að með þessar stöður skuli ráðskast eins og ýjað hefur verið að í fjölmiðlum er óhæfa. Í nútímaþjóðfélagi er mikilvægt að svo veigamiklar stöður séu auglýstar svo öllum sem telja sig hafa getu til að gegna þeim gefist kostur á að sækja um þær. Bankamenn eru fjölmenn stétt og þar eru fjölmargir hæfir menn sem hafa þann metnað að sækjast eftir æðstu stöðum innan bankakerfisins. Þá eru einnig til ágætir fjármála- og athafnamenn sem hafa vafalaust áhuga á og mundu leysa þessi störf vel af hendi. Það er því áríðandi að þessar stöður séu auglýstar og afstaða tekin til umsækjenda eftir þeim umsóknum sem berast.
Sú aðferð sem nú er höfð við að ákveða ráðningu bankastjóra er ekki sæmandi í nútímaþjóðfélagi. Það er því mjög slæmt þegar verið er að ráðskast með þessar stöður mörg ár fram í tímann að því er virðist og ekki hægt að verja það.
Í fyrsta lagi stríðir þetta fyrirkomulag, að skipta bankastjórum á milli gömlu stjórnmálaflokkanna eftir kvótafyrirkomulagi, gegn lýðræði í landinu og er enn þá eins staðfesting á eðli þessara flokka sem er að deila, drottna og skammta. Fólkið í landinu er þreytt á þessari stefnu sem birtist í því að stjórnarflokkarnir eru búnir að bindast órjúfandi og eilífu samkomulagi um að framfylgja þessari skömmtunarstefnu. Bönkunum og útibúum þeirra hefur fjölgað geysilega síðustu árin. Það skiptir því miklu hverjir veljast til starfa sem aðalbankastjórar ríkisbankanna. Við í Borgarafl. höfum ályktað um þessi mál og verður ekki fjölyrt um það hér frekar.
Í umræðum um þetta mál hefur komið fram að þeir sem komu hér upp og töluðu um málið voru mjög samþykkir þessari breytingu á lögunum sem felst í því að auglýsa bankastjórastöðurnar og að umsækjendur geti þá um starfsferil sinn og menntun.
Við í Borgarafl. leggjum áherslu á að þessi brtt. nái fram að ganga og teljum að það geti ekki skaðað eða verið í móti neinum sem hugsar um þessi mál. Ég vil því sérstaklega spyrja hæstv. viðskrh. hvaða skoðun hann hefur á málinu.