24.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í B-deild Alþingistíðinda. (1065)

1. mál, fjárlög 1910 og 1911

Framsögumaður (Skúli Thoroddsen):

Eg lít svo á, að háttv. þm. Barð. (B. J.) hafi lokið framsögu um þessar gr., áður en hann fór. Þess vegna og hins, að nefndarálitið gerir grein fyrir till. fjárlaganefndar, þá finn eg ekki ástæðu til að segja neitt um málið að svo komnu, en geymi það þangað til eg heyri undirtektir einstakra þgm.