01.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)
1. mál, fjárlög 1910 og 1911
Stefán Stefánsson:
Eg hefi hér áður við umræðurnar reynt að gera deildarmönnum ljóst, hvað nauðsynlegt, og að mínu áliti sjálfsagt það væri, að nú á næsta fjárhagstímabili væri veitt sú fjárupphæð til akbrautarinnar í Eyjafirði, sem bæði verkfræðingur landsins og stjórnin hefir lagt til, að stæði á fjárlögunum, og skal því ekki fara að endurtaka allar ástæður, sem eg hefi þegar talið fyrir því máli; en þar sem nú er komin fram tillaga um að þessi fjárveiting verði feld út af fjárlögunum, og í því sambandi umræður orðið alleinhliða, þá vil eg að eins óska þess, að atkvæðagreiðslan sýni það, að málið eigi ekkert skylt við flokkadeildir eða flokkaríg. Þau orð, sem fallið hafa í þá átt, eru öldungis óþörf og illa viðeigandi, þegar gagnsemdafyrirtæki og veruleg framfaramál eiga hlut að.
Þá vil eg sérstaklega minnast á tillögu háttv. 1. þm. Rvk. (J. Þ.) er fer fram á að feld sé burt öll fjárveiting til síma. Þetta virðist mér mjög ósanngjarnt og óhyggilegt, einkum að því er snertir símalínuna til Siglufjarðar. Enda virtist hinn háttv. þm. tala þar af bersýnilegum ókunnugleika. Eftir orðum hans á símalínan að mestu leyti að liggja um fjöll og óbygðir, En sannleikurinn er sá, að álman yrði lögð alla leið eftir allþéttbygðum sveitum, nema á örstuttu svæði, sem er leiðin yfir Siglufjarðarskarð. Þessi stutta símaálma mundi því, auk þess sem eg tók fram, að hún kemur allstórum bygðarlögum í símasamband, einnig liggja um 4 kauptún í Skagafjarðarsýslu og um Siglufjörð, sem er í Eyjafjarðarsýslu.
Að þessu yrði því ekki að eins hlutaðeigandi héruðum hagur, heldur yrði þetta landssjóði mikill tekjuauki, einkum þar sem svo mörg kauptún eru á jafnstuttri leið. Auk þess eru 2/7 fjárupphæðarinnar lagðir fram af héruðunum sjálfum, og er það meira en til nokkurrar annarar símaálmu, sem nú er í ráði að leggja samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Og þó er þessi álma óneitanlega þeirra allra álitlegust hvað væntanlegar tekjur snertir fyrir landssjóð.
Siglufjörður er stærsla kauptúnið á þessari línu, en auk þess aðalviðkomustaður veiðiskipa fyrir Norðurlandi og aðal-fiskveiðastöð útlendinga hér við land. Þess vegna er eg í alls engum vafa um, að beinn hagur yrði af þessari álmu.
Eg vil taka hér sem dæmi, að 3 síldveiðafélög á Hjalteyri hafa borgað stórfé í landssjóð; eitt þeirra veit eg til að borgaði 6700 kr. á rúmum 2 mánuðum. Á Siglufirði eru og mörg stór síldveiðafélög erlend.
Það hefir komið til tals, að símalína þessi yrði lögð frá Ólafsfirði til Siglufjarðar, og ætti eg sízt að vera því mótfallinn hvað snertir mitt kjördæmi, eða Eyjafjarðarsýslu, út af fyrir sig skoðað, þar sem sýslan og sveitarfélag Ólafsfjarðar hefir lagt síma þangað, og hefði því sjáanlega hag af því að sú álma yrði lengd til Siglufjarðar. En þá yrði hagurinn minni fyrir landssjóðinn, því að þá lægi álman eingöngu um óbygðir, og viðhaldskostnaður mundi verða talsvert mikill, og það sem jafnvel mest er um vert, er að þá mundi þess langt að bíða, að norðursveitirnar og kauptúnin í Skagafjarðarsýshi kæmist í símasambandið.
Það er því ekkert áhorfsmál, að álman ætti að liggja um Skagafjarðarsýslu til Siglufjarðar, og hún ætti jafnframt að koma sem fyrst.
Eg þykist vita, að við atkvgr. verði greitt atkv. um hvern einstakan lið tillögunnar, og vil því biðja háttv. þm. að athuga vel þennan lið, með því að hér er ekki einungis um hag hlutaðeigandi héraða að ræða. heldur og alls landsins í heild sinni.