17.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í B-deild Alþingistíðinda. (1221)

4. mál, landsreikningurinn 1906-1907

Forseti (H. Þ.):

Sem annar yfirskoðunarmaður landsreikninganna skal eg geta þess, að svör ráðherra upp á athugasemdir okkar fengum við ekki fyr en að kveldi 13. febr., og hefi eg síðan engan tíma haft til að athuga svörin, en væntanlega verða reikningarnir afgreiddir frá okkur yfirskoðunarmönnunum nú um helgina.