22.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 831 í B-deild Alþingistíðinda. (1312)
6. mál, aðflutningsgjald
Ráðherrann (H. H.):
Eins og eg hefi tekið fram, held eg að menn geri sér alt of háar hugmyndir um það, hversu mikið peningalegt tjón það sé fyrir landið, ef að lög þessi ganga ekki strax í gildi. Eg held það ætti ekki að gera neitt til, þótt það væri látið bíða eftir næsta skipi; þá ætti það að vera komið til Kaupmannahafnar kringum 10. marz, og þá ætti það að geta fengið staðfestingu, ef ekki samdægurs, þá að minsta kosti einum eða tveim dögum eftir að skipið kemur þangað, og eftir þann dag væri alt áfengi tollað þessum hækkaða tolli, um alt land. Annars er ekki að reiða sig á það, að fregnir þær um hinar miklu vínbirgðir, er hingað sé von innan skamms, séu á nokkrum rökum bygðar. Slíkar sögur eru mjög oft ýktar.
Eg heyrði t. d. sagt um daginn, að einn kaupmaður hér hefði fengið 170 »uxahöfuð« af brennivíni, en slíkt var mjög orðum aukið, og svo getur og verið um þessa fregn. Eg get ekki séð, að hér sé knýjandi ástæða fyrir hendi, að rétt sé að vera að brjóta upp á nýjum stórfeldum afbrigðum frá gildandi reglum um staðfesting laga. Væri mjög mikið í húfi, t. d. einhver hætta fyrir land og lýð, þá væri sök sér að grípa til slíkra örþrifaráða. En hér er ekkert slíkt á ferðinni.