26.04.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í B-deild Alþingistíðinda. (1369)
8. mál, laun háskólakennara
Framsögumaður (Jón Þorkelsson):
Þessi kjósandarödd háttv. 2. þm. Arn. (Sig. S.) mun ekki hafa verið stíluð fyrir þingið, heldur fólkið, sem að á hlýðir og bera orð hans út í landsbýið. Þingmanni þessum geri eg að vita það, hvað við á í öðru eins máli og þessu, og hvað þar sé nauðsynlegt. Hann þykist og auðsjáanlega annars færi hann ekki að gera sig hér að lærimeistara vita betri skil á máli þessu en allir aðrir, sem um það hafa fjallað; hafa þó átt þar ýmsir þeir menn hlut að, sem ætla má að viti með hvað þeir eru að fara, þar á meðal allir forstöðumenn hinna æztu skóla landsins, og síðan landsstjórnin. En þessi þingmaður einn þykist vita betur og bera meira skyn á þetta mál, en allir þessir menn og kunna betur að segja til þess, hvers með þurfi. Hitt er eftir að vita, hversu margir vilja læra þessa fræði hans og meðtaka hana í trúnni.
Breyt.till. þessa háttv. þm. (Sig. S.) miða allar til að spilla þessu frumv. Eg veit eigi betur, en að háttv. 2. þm. Árn. (Sig. S.) segist vera hlyntur, að hlúð sé að hinni »óæðri« mentun hér í landinu, og eru nú skólar þandir yfir alla skækla landsins, en á þá hin æðri mentun ekki upp á pallborðið hjá honum af því, að hann vilji ekki hafa hér neina mentun, nema þá »óæðri«, ekki aðra mentun en »hálfmentan«? Um leið og þingmaðurinn vildi lækka laun háskólakennaranna, þá spáði hann því, að eigi mundi verða eins dýrt að lifa hér í Reykjavík framvegis eins og hingað til. En hefir nú háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) athugað það, hverju hann er að spá með þessu? Hann er að spá því, að smjörið frá rjómabúunum, sem hann ber svo mjög fyrir brjóstinu, að komist í sem hæst verð, muni falla í verði. Hann spáir því, að kjötið, sem hann vill að slátrunarfélögin hafi einokun á að selja takmarkalaust dýrt, muni falla einnig í verði. Býst háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) þá ekki við, að hann muni fá lánið handa sláturhúsinu, sem hann leggur svo mikla áherzlu á, og svo muni sú einokun steypast? Spádómur þessi er ljótur og slæmur fyrir alt landið, og þó hrakverstur fyrir kjördæmi þessa háttv. 2. þingm. Árn. (S. S.), og gefur kjósendum hans nú á að líta í þingtíðindunum, sem þingmaðurinn býst nú við, að verði prentuð í ár, huggunargreinar hans landbúnaðinum til handa. En sem betur fer, þá eru allar þessar hrakspár þingmannsins um landbúnaðinn ástæðulausar, jafn-ástæðulausar og breyt till. hans, sem eg vona, að verði allar feldar. Það er vonandi, að allar afurðir landsins heldur hækki en lækki í verði, og því samfara hlýtur það að vera, að laun starfsmanna þess opinbera mega ekki vera skorin mjög nápínulega við neglur sér.
Annars virðist »pólitík« þessa háttv. 2. þm. Árn. (S. S.) vera nokkuð undarleg. Meðal verkmanna í Reykjavík þykist hann vilja, að verkakaup alt sé hækkað, en þegar hann á að útvega sveitabændum starfs- og vinnufólk hér frá sjávarsíðunni, þá vill hann að bændur fái það sem ódýrast. Komi þeir þessu saman, sem geta. Nú gefur deildinni hér í dag enn sem oftar, að meta tillögur slíks þingmanns. Og eg efast ekki um, að matið fari að maklegleikum í þessu máli.