25.02.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í B-deild Alþingistíðinda. (1452)

17. mál, kosningar til Alþingis

Flutningsmaður (Jón Þorkelsson):

Eg verð að sitja fast við minn keip um það, að sérstök nefnd sé skipuð í málið, en því ekki vísað til kjördæmanefndar.

Það er sitt hvað, kjördæmaskipun og kosningalög. Þar getur því ekki orðið neinn árekstur.