12.03.1909
Sameinað þing: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 399 í B-deild Alþingistíðinda. (157)

6. mál, aðflutningsgjald

Jón Ólafsson:

Eg tek að eins til máls sem framsögum. nefndarinnar í Nd., til þess að lýsa yfir því, að hún aðhyllist málið alveg eins og það liggur fyrir frá háttv. Ed.

Um breyt.till. á þgskj. 196 hefi eg það eitt að segja, að eg sé enga ástæðu til þess að aðhyllast hana, og vildi helst að hún yrði tekin aftur, þótt eg búist við, að sú ósk mín hafi ekki mikil áhrif, þar sem háttv. 3. kgk. þm. virðist hafa tekið slíku ástfóstri við breyt.till., að hann muni ekki vilja sleppa henni.