12.03.1909
Neðri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (1586)
21. mál, vígslubiskupar
Sigurður Gunnarsson:
Eg skal taka það fram gagnvart því, sem háttv. þm. Mýr. (J. S.) sagði, að eg fyrir mitt leyti vildi upphaflega fylgja stjórnarfrv., og hafa að eins einn varabiskup.
En maður gerir oft ýmislegt til samkomulags, enda sé eg við nánari íhugun, að það gat verið viðfeldið fyrir Norðurland, að annar varabiskupinn væri í þeim fjórðungi lands, og kostnaðarminna fyrir prestsefni að vígjast þar, en það mun einmitt vera tilætlun núverandi biskups, að vígslubiskup Norðlinga framkvæmi prestsvígslu í þeim hluta landsins, að minsta kosti að jafnaði.
Eg er samdóma hv. 2. þm. S.-Múl. (J. Ó.) um það, að hér geti ekki undir neinum kringumstæðum verið um launað embætti að ræða.